Fæðist lítill Lindström í dag?

Það er í dag, það er í dag! Samkvæmt sænskum sónarfræðum á lítil meyja að fæðast í dag. Kannski ekki kvenleg meyja, en það er alveg öruggt í hvaða stjörnumerki þetta barn verður. Litla krílið hennar Hörpu kemur kannski ekki í dag en héðan í frá magnast spennan dag frá degi. Ég var búin að giska á 3. september og þætti mjög vænt um að fá að hafa einhvern tímann rétt fyrir mér. Helga stóra systir er komin til litlu systur og ætlar að fá að vera viðstödd fæðingu fyrsta barnabarnsins í báðum fjölskyldum. Þetta barn verður elskað!

Hlakk hlakk...

Sól'amma :) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svoo spennó ! Þú kannski hefur bara rétt fyrir þér og hann kemur eftir helgina.. Hann er allavega ekkert að drífa sig neitt í dag ! :D En eitt er víst að drengurinn kemur á afmælisdaginn sinn ;)

Harpa (IP-tala skráð) 29.8.2012 kl. 12:49

2 identicon

Jamms, ógó spennó

Ásta (IP-tala skráð) 30.8.2012 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband